news

Huggulegur desember á Tanga

11 Des 2018

Í desember er markmið okkar að hafa huggulegt og skemmtilegt en ekki vera með stress og spennu. Við áttum t.d dámsamlega stund í Stórurðalundi í kuldanum og snjónum, höfðum með okkur kakó og piparkökur og höfuðljós í myrkrinu. Það eru bara töfrar að vera í skóginum við þessar aðstæður. Við munum áfram reyna að skapa góð augnablik og njóta, skoða bæinn okkar í jólabúningi, syngja, hlusta á jólasögur, föndra, fá fróðleik um jólasveinana, huga að smáfuglunum, halda afmæli, jólasokkadagur og jólagleðin okkar. Allir að njóta en ekki þjóta.

Jóna Lind