news

Leiksýning : Iðunn og eplin. Kómedíuleikhúsið með sýningu í leikskólanum

20 Feb 2020

Kómedíuleikhúsið sýnir Iðunn og eplin í leikskólanum 26.02.2020.

Í annað sinn þurfum við að fresta þessari leikskýningu vegna veðurs. EN við eru búin að panta gott veður miðvikudaginn 26.febrúar og þá verður sýning - allt er þá þrennt er :)

Leiksýningin Iðunn og eplin verður sýnd í leikskólanum 26. febrúar kl.09.15 í Sólborg og kl. 10.15 á Tanga.

Vörður hinna norrænu goða, Heimdallur, segir okkur sögur úr Valhöll og af ásum. Sagan sem Heimdallur segir að þessu sinni, er Iðunn og eplin. Hinn lævísi Loki platar Iðunni útí skóg því þar sé að finna girnileg og gómsæt epli. En þar eru engin epli heldur..........

Höfundur/Leikari: Elfar Logi Hannesson

Leikmynd/Búningar/Leikstjórn: Marsibil G. Kristjánsdóttir

Uppbyggingasjóður Vestfjarða & Ísafjarðarbær styrkja Kómedíuleikhúsið