news

Útinám á skíðum

13 Feb 2019

Við á Tanga erum mikið að nota skíðin í útináminu, æfum ýmsa færni eins og að taka festingar af og setja á, komast sjálf í skíðin, jafnvægi, standa sjálf upp, ganga á skíðunum, renna, nota gæsagang, fara í þrautabraut og leika okkur á skíðunum. Fyrst og fremst leggjum við upp með að það sé gaman að fara á skíði og æfingin skapar meistarann.