Velkominn í leikskólann
Leikskólinn Sólborg var tekinn í notkun 1 febrúar 1998. Þá voru sameinaðir tveir leikskólar Hlíðarskjól og Skólaskjól. Arkitekt leikskólans er Elísabet Gunnarsdóttir og landlagsarkitekt Áslaug Traustadóttir. Verktakar voru Eiríkur og Einar Valur hf.
Í leikskólanum Sólborg eru nú fimm deildir, fjórar þeirra eru starfræknar í húsnæði leikskólans við Torfnes en elstu nemendur leikskólans eru á Tanga og deila húsnæði með Tónlistaskóla Ísafjarðr í gamla Hússtjórnaskólanum við Austurveg. Deildarnar er aldursskiptar þ.e. tvær deilar skipta með sér yngstu börnunum og tvær skipta með sér 3-4 ára, síðan er 5 ára börnin á aldurshreinni deild. Deildirnar bera allar gömul staðarnöfnum héðan frá Ísafirði þ.e. Bót, Dokka, Naust, Krókur og Tangi .
Vegna skorts á leikskólaplássi á Ísafirði á árunum 2013-2015 var deild starfrækt frá Sólborg á efrihæð Sundhallarhúsnæði bæjarinns, voru þar fimm ára börn bæði frá Eyrarskjóli og Sólborg sameinuð á deild sem kölluð var Eyrarsól.
17. janúar 2017 opnaði ný fimm ára deild í húsnæði Tónlistaskóla Ísafjarðar fyrir fimm ára börn bæði frá Eyraskjóli og Sólborg. Þessi ráðstöfun var gerð til að mæta sveiflum á þörf á leikskólaplássum á Ísafirði, sem er mjög misjöfn eftir árgöngum. Þessi deild heitir Tangi með skírskotun í Norðurtangan og gömul staðarnöfn hér á Ísafirði eins og aðrar deildir í leikskólanm Sólborg.